
Áfram Ég!
Sex lyklar að velgengni
Verð
79.000 kr. á þátttakanda.
Flest stéttarfélög niðurgreiða námskeiðið. Styrkur getur numið allt að 90%, þó misjafnt eftir stéttarfélögum.
Lengd námskeiðs
Námskeiðið er 12 klst. (4x3 klst.)
Næstu námskeið
Áfram Ég!
Jan/Feb 2022
Dagssetningar koma í byrjun janúar.

Leiðbeinandi
Ragnar Matthíasson mannauðsráðgjafi - MBA og MSc. í mannauðsstjórnun.
Ragnar hefur víðtæka reynslu af námskeiðahaldi og ráðgjöf. Hann hefur unnið fyrir fjölda fyrirtækja af ýmsum stærðum og gerðum.
Frekari upplýsingar í síma 8983851
Netfang: ragnar@rmradgjof.is
Ummæli þátttakenda
-
"Heilt yfir frábært námskeið sem ýtti við mér og hjálpaði mér að ná markmiðum mínum hratt og vel."
-
"Gott og fræðandi námskeið, ótrúlega skemmtilegt og ég er mjög ánægð með að hafa ákveðið að skella mér."
-
"Takk fyrir mig, þetta er mjög gott og gagnlegt námskeið."
Námsmarkmið
Námskeiðið miðar að því að gera þátttakendur hæfari í að koma sér á framfæri og greina stöðu sína sem einstaklinga og gera þeim kleift að tileinka sér ákveðna hugsun, hegðun og leiðir til að efla sig sem persónur. Áfram Ég!
Námskeiðslýsing
Á námskeiðinu er lögð áhersla á að styrkja þátttakendur í sex lykilskrefum á leið þeirra til aukinnar velgengni í lífinu:
1. Samskipti.
Í samskiptum er sjálfsmeðvitund mikilvæg, að gefa sér tíma, hlusta, hrósa og gagnrýna á uppbyggilegan hátt og semja þannig að allir gangi sáttir frá borði.
Unnið með: Samskiptaform, samningatækni, áhrif og mikilvægi hegðunar í samskiptum.
2. Markmiðasetning.
Til að ná árangri þarf að skipuleggja sig og setja sér markmið. Hvernig geri ég betur?
Unnið með: DUMB aðferðafræðina, 80/20% regluna, tímastjórnun, aga og vilja. Leiðin út
úr fullkomnunaráráttunni.
3. Sjálfsefling.
Ferðalag með fyrirheit þar sem vilji og agi kallast á og skila þér á áfangastað.
Unnið með: Styrkleika, sjálfstraust, áskoranir og þroskaferli.
4. Fjármál.
Þarf ég að vera fátækur ef ég verð ekki ríkur?
Unnið með: Viðhorf til peninga, yfirsýn, skipulag, markmið.
5. Heilsa.
Góð andleg og líkamleg heilsa er grunnurinn að því að geta gert það sem ég vil í lífinu.
Unnið með: Mataræði, hreyfingu, hugarfar og hamingju.
6. Framkoma.
Góð og örugg framkoma lætur mér líða betur í eigin skinni, styrkir mig sem einstakling og hvetur fólk til liðs við mig.
Unnið með: Grunnatriði í framkomu og að öðlast kjark til að tjá mig fyrir framan fólk.
Kennsluform: Fyrirlestur, umræður, verkefni, dæmisögur og myndskeið. Á þessu námskeiði er gert ráð fyrir að þátttakendur vinni verkefni milli skipta auk lokaverkefnis.
Ávinningur
Markmið með námskeiðinu er að efla, þroska og bæta árangur einstaklingsins í lífi og starfi.
Kenndar eru ákveðnar aðferðir sem hjálpa þátttakendum að finna og nýta styrkleika sína.
Lengd námskeiðs
Námskeiðið er 12 klst. (4x3 klst.)
Næstu námskeið
Áfram Ég! Jan/Feb 2022
Dagssetningar koma í byrjun Janúar
Verð
79.000 kr. á þátttakanda.
Flest stéttarfélög niðurgreiða námskeiðið. Styrkur getur numið allt að 90%, þó misjafnt eftir stéttarfélögum.